fimmtudagur, 7. október 2010

Endur

Við Steinunn höfum loks dregið bloggpennann upp aftur og hafist handa við að skrá ævintýr í Japan. Fyrir liggur meðal annars að gera svokallað innlit/útlit myndband í anda Valgerðar Matthíasdóttur.

Bráðfyndin færsla Steinunnar um litla önd með væng fær nú nýtt líf með aðstoð myndbands. Neðansýnt myndband var tekið upp í byrjun júní á fyrirlestri fyrir menntasvið Sakai borgar. Lesa má nánar tildrög fyrirlestursins í bloggfærslu Steinunnar.

Áður en æstir lesendur spila myndbandið vill ég aðeins koma nokkrum orðum að. Við grípum niður þar sem Steinunn er að flytja fyrirlesturinn og samstarfskona hennar Hiroko túlkar. Líklega er um 80% öllu því sem Steinunn segir í Japan túlkað yfir á Japönsku. Varðandi það sem á eftir kemur er það ansi gott dæmi um hversu agaðir Japanir eru og hversu hreint þeir ganga til verks. Japanir eru mjög skipulagðir þegar kemur að því að takast á við ákveðin verkefni. Mikill liðsandi er oft ríkjandi og ALLIR hjálpast að. Það er ekkert til sem heitir “ég nenni ekki” eða “ég vill ekki vera með”. Þetta á við í öllu tilfellum, jafnvel þótt einhver stelpa frá Íslandi biðji þig vinsamlegast að haga þér eins og önd.

Góðar stundir.

Þess má að lokum geta að full útgáfa myndbandsins hefur nú verið fjölfölduð og dreift til allra kennara Sakai borgar og hefur væntanlega fengið sitt hillupláss í rafrænum bókasöfnum grunnskólana. Litla öndin frá Íslandi hefur því hafið sig til flugs um menntakerfi landsins.

Engin ummæli: