sunnudagur, 10. október 2010

10

Tíu hressandi fróðleiksmolar og áhugaverðar staðreyndir sem rekið hafa á fjörur mínar í Japan.

1. Japanir kunna almennt ekki ensku. Sé tekið mið af meðalskori í hinu svokallað TOEFL enskuprófi eru japanir þar neðstir af öllum þjóðum Asíu.

2. Í Japan eru til um 4.000 tonn af hvalkjöti í frysti. Miðað við núverandi neyslu eru þetta birgðir til fjögura ára (heimild, Japan Times). Gangi þér vel Kristján Loftsson.

3. Samurai embættismennirnir (síðar hermenn) voru flestir ef ekki allir samkynhneigðir.

4. Örbylgjupopp hefur ekki náð neinni útbreiðslu í Japan. Einungis er hægt að komast yfrir slíkt í amerískum sérvöruverslunum. Fyrir okkur er hægt að nálgast slíkt með því að taka þrjár lestir í 2 klst, ganga 2 km og borga 5000 ¥ ársgjald í CostCo. Eins gott að Steinunn hefur engu gleymt þegar kemur að pottapoppi.

5. Japanir tóku aldrei upp SMS skilaboðakerfið. Ekkert símakerfi í Japan styður SMS sendingar. Þegar við Íslendingar vorum að senda okkar fyrstu sms úr Nokia og Ericson símum voru Japanir að senda tölvupósta úr Sony og Sharp símum.
5,5. Símafyrirtækið NTT setur fljótlega á markað síma hér í Japan sem ekki þarf að setja í samband til að hlaða…hann hleður sig þráðlaust jafn hratt og með venjulegu hleðslutæki. Engar snúrur, ekkert vesen.
6. Útivist er snobb í Japan. Hér eru minnst 10 tískublöð sem fjalla bara um tísku í útivistarfötum. Á milli Laura Ashley og Louis Vuitton er mjög líklegt að maður finni stóra útivistarbúð. Í Osaka eru tvær í hjarta borgarinnar nánast hlið við hlið. Í þeim má finna öll helstu útivistarmerkin….í litum sem ekki finnast utan Japans.

7. Shinkansen hraðlestirnar í Japan er hraðskreiðustu lestir í heimi og þær stundvísustu. Ferðahraðinn er í kringum 300 km/klst en þær geta þó farið í 570 km/klst. Lestirnar eru alltaf á réttum tíma, +/- 6 sek.

8. Japanska popp senan (J-pop) er nokkuð merkilegt fyrirbæri og vinsælt. Þar trjóna á toppnum nokkrar söngdívur. Sú sem nær að herma best eftir Mariu Carey selur mest. Tvær þeirra stigu hins vegar algjörlega út fyrir kassann og ákváðu að herma eftir Celine Dion. Skiptar skoðanir eru um hvort það hafi verið rétt ákvörðun.

9. Brókarblæti er talsvert vandamál í Japan. Hvergi í heiminum er stolið jafn miklu af kvenmannsnærbuxum. Vikulega berast fregnir af því að undirfataþjófar hafa náðst og lögregla lagt hald á mikið magn “þýfis”. Í síðustu viku var t.d. karlkyns starfmaður í grunnskóla handsamaður fyrir að dulbúast sem kvennmaður og komast þannig inn á heimavist kvennkyns nemenda til að komast yfir nokkrar nærur.

10. Sé nöfnum allra landa heimsins raða í japanska starfrófsröð er Ísland efst.

2 ummæli:

Maria Th sagði...

sjibbí...Ísland fremst í stafrófsröð Japana..bezt í heimi!

Bið að heilsa Steinunni, kennslumyndbandið (endurnar) er gullið framlag til menntunarmála og ég hyggst leggja þetta fram í áfanganum sem ég er í núna: námsefnisgerð og -greining! =)

Nafnlaus sagði...

Þetta eru skemmtilegar og gagnlegar upplýsingar. Maður hefur tilhneigingu til að halda að þróaðar iðnaðarþjóðir séu mjög líkar, en það er greinilegt að Japanir gera ýmislegt á eigin forsendum. Hefðir og menning eru sterk öfl. Og hvílík bygging þarna í Naga. Kveðjur, Guðjón