þriðjudagur, 10. ágúst 2010

Osakar

Borgin Osaka er hjarta Kansai svæðisins og er oftast flokkuð sem næst stærsta borg Japans. Það er nefnilega ekki sama hvernig talið er. Osakar voru til að mynda 2.628.811 samkvæmt Tölfræðistofnun Japans árið 2005. Hér er aðeins átt við íbúafjölda í sveitarfélaginu Osaka en í kringum borgina er samfellt þéttbýli sem nær yfir talsvert stærra svæði. Þetta er í raun eins og að bera saman íbúafjölda í sveitarfélaginu Reykjavíkurborg og íbúafjölda á höfuðborgarsvæðinu. Sé íbúafjöldi Osaka svæðisins lagður saman er talan augljóslega talsvert stærri. Sameinuðu Þjóðirnir telja að Osaka sé í 15. sæti yfir stærstu borgir í heimi, en aðrar heimildir segja að hún sé ofar (12. - 10. sæti). Áætlaður fjöldi er oftast í kringum 15 milljónir.

En Osakar eru ekki bara margir, þeir njóta einnig talsverðrar sérstöðu í japönsku samfélagi. Þeir nota til að mynda svokallaða Kansai mállýsku (Kansai-ben) sem er frábrugðin hinni venjulega japönsku. Það er mál manna (og kvenna) að tunga Osakanna sé í senn hljómfögur og jafnvel melódísk en á sama tíma harðari en hefðbundin japanska. Einnig hafa Osakar stytt mörg hefðbundin orð í japönsku. Sögnin  Chigau (að vera öðruvísi) breytist til að mynda í Chau. Venjulegur Osaki gerir því grein fyrir uppruna sínum um leið og hann opnar munninn utan heimasvæðisins.

Osakar eru einnig taldir með fyndnari mönnum í Japan. Flestir japanskir grínistar og uppistandarar koma frá Osaka. Fyndinn gaur í japan fær gjarnan þá spurningu hvort hann sé frá Osaka, ef mállýskan hefur ekki þegar komið upp um hann. Þetta er líklega ekki sambærilegt við Hafnfirðinga heima á Íslandi, enda eru þeir oftast einungis vandræðalega fyndnir (skoðun höfundar).

Annað dæmi um sérstöðu Osaka er notkun rúllustigans. Osökum er það tamt að standa hægra megin í stiganum ef þeir kjósa að láta stiga sjá alfarið um uppgönguna. Sé maður hins vegar á hraðferð er hægt að ganga/hlaupa upp vinstra meginn. Þessu er öfugt farið í Tokyo og annarstaðar í Japan eftir því sem höfundur kemst næst, enda vinstri umferð í landinu. Osökum hættir því við að fá eitt eða tvö hornaugu í rúllustigum annarra borga en Osaka.

Augljós munur er á íbúum Tokyo og Osaka.

Engin ummæli: