Nú þegar ég er búinn að vera í Japan í rúmlega mánuð er ég aðeins að reyna að átta mig á hlutunum. Hreint út sagt er þetta eins mikið öðruvísi og hugsast getur. Allt er eins og maður á ekki að venjast. Þessi upplifun kristallaðist síðasta mánudag þegar ég sótti ráðstefnu sem hálfgerður leynigestur. Ráðstefnan var haldin í tilefni 100 ára samstarfs Japans og Suður-Afríku og var með fókusinn á stöðu kvenna í Suður Afríku. Þar var Steinunn í hópi fyrirmanna og kvenna og tók þátt í pallsborðsumræðum.
Ég laumaði mér inn og kom mér fyrir í miðjum sal. Það þurfti ekki meira til þess að svipta þessari innkomu minni öllu því sem gæti kallast leynilegt. Salurinn var fullur af rúmlega 1000 japönskum konum sem náðu mér fæstar í öxl. Áður en formleg dagsrá hófst voru tónlistaratriði og ljóðalestur. Get ekki lýst þessum atriðum með beinum hætti, en ég set hér niður það sem fór í gegnum hausinn á mér á meðan.
"Okei ... ég veit ekkert hvað er að fara gerast. Spennandi"
"Vó ... hvað rugl var þetta"
"Ha? ... afhverju byrjuðu allir allt í einu að klappa með"
"Snilld"
"Hvað gerist næst ...?"
"Ha? ... er þetta búið?"
Þetta "hugarástand" er mjög lýsandi fyrir upplifun mína á japanskri menningu. Sökum tungumálaörðugleika hef ég sjaldnast hugmynd um hvað er að fara gerast eða af hverju eitthvað gerist. Þó svo að einhver lýsi því fyrir mér á ensku áður eitthvað gerist, þá er það samt ekkert eins og ég ímynda mér. Á morgun er okkur Steinunni boðið í matarhlaðborðsbingó á flottasta hótelinu í Sakai ... get bara ekki beðið.
4 ummæli:
Náðist ekki mynd af salnum?
Ég fékk bara fráhvörf að lesa um þetta "hugarástand" þitt ;-)
Svo að lokum, skiljanlega ertu spenntur fyrir matarhlaðborðsbingó á flottu hóteli. ÓKEYPIS flottur matur, spenna og jafnvel vinningar. Uppskrift að flottu kvöldi.
Gangi ykkur vel í dag og aðra daga!!!
Matarhlaðborðsbingó...semsagt þótt þig langi geigvænlega mikið í þurrkuðu snakkfiskana á borðinu þá máttu ekki gæða þér á þeim fyrr en þú hefur fengið "bingó" og vinnur þá í verðlaun??
I'm in intrigued! ;)
Nei annars, hvað er matarhlaðborðsbingó haha?!
Og er goðsögnin sönn um "alvöru" sushi menningu í Japan, að það megi ekki blanda wasabi saman við soya sósuna?
Sushi, heitar laugar, miso súpa, tækni undur, kimono, studio ghibli, sakuri festival og brjálæðisleg tískutjáning..nokkrar af mörgum ástæðum fyrir löngun minni til að fara til Japan :þ
Hahaha sé þig alveg í anda einan og vandræðalegan innan um allar japönsku konurnar á þessari ráðstefnu :)
Það er plokkari í matinn hjá Bogga á morgun, bara svo þú vitir af hverju þú ert að missa :)
Matarhlaðborðsbingó bloggfærslan er á leiðinni í loftið. Ég hef ennþá ekki séð Japna blanda wasabi í soya. Ég geri það samt alltaf. Ég held að það sé ekkert sem banni það að blanda þessu saman. Hins vegar eru til Sushi rúllur þar sem búið er að skipta grjónum út fyrir wasabi! Það þykir vera tákn um karlmennsku kjósi maður að fá sér þannig...eða lifi það af á annað borð. Spurning um að reyna það við tækifæri.
Bið að heilsa plokkaranum.
Skrifa ummæli