Fékk mér kort í ræktina hér í Sakai um daginn. Steinunn fékk sér kort um daginn og bloggaði aðeins um það (sjá færslu hér). Skráningarferlið var í raun frekar einfalt eftir að Steinunn hafði plægt ferlið með aðstoð samstarfskonu frá UNIFEM skrifstofunni. Ég var þó fenginn til að staðfesta að ég væri ekki með tattú. Tattú eru víst bundin við japönsku mafíuna og slíkum félagsskap er ekki hleypt inn fyrir dyr Konami Sports Club. Annars minnir þessi rækt nokkuð á gamla Studio Dan á Ísafirði nema hvað það er allt miklu, miklu hreinna.
Við undirritun samningsins fékk ég svo hið eiginlega kort í hendurnar sem lítur svona út:
Hef aðeins verið að rýna í þesar upplýsingar sem þarna eru gefnar upp. Undir myndinni er nafnið mitt hljóðritað með Katakana letri (Rakunaru Surasutorson). Þar fyrir neðan er nafnið mitt aftur nema hvað það vantar aftasta táknið. Annað hef ég ekki hugmynd um hvað er. Þó er greinilegt að ég er tveggja stjörnu maður en virðist þó samkvæmt uppsetningu geta náð mér í nokkrar í viðbót ... hvernig sem ég fer að því.Önnur skilríki hér í Japan eru með svipaða uppsetningu. Steinunn hefur t.d. fengið í hendurnar skírteini sem sýnir að hún sé starfsmaður opinberrar stofnunar (UNIFEM) hér í Sakai. Slíkt skírteini getur stundum verið mikilvægt. Eins og þegar Steinunn átti erindi í japanska utanríkisráðuneytið í Tokyo. Þá sýndi hún þeim sem fyrir henni urðu skírteinið alveg þangað til samstarfskona hennar spurði ... Af hverju ertu að sýna öllum líkamsræktarkortið þitt?
4 ummæli:
Góðan daginn. Flott kort, en þú ert örugglega meira en 2ja stjörnu!!
Það fylgir því viss öryggistilfinning að veifa réttu pappírunum/kortunum, skemmtileg athugasemd hjá samstarfskonu Steinunnar!
Ánægjulegt að þú hafir fengið inngöngu í Konami Sports Club.. Forvitnilegt að vita hvað fjöldi stjarna merkir.. ;-)
Skemmtileg nöfnin sem þú hefur fengið - Rakunaru Surasutorson og Lucky! ..gaman að halda þeim til haga, verða örugglega fleiri :-)
Hvenar dags hentar ykkur annars best að spjalla á Skype? (Á íslenskum tíma... ??)
Kv. Kristjana Þ.
Við erum 9 tímum á undan ykkur þannig að best er að ná í okkur fyrripart dags að íslenskum tíma.
Fyndið! Ég fengi s.s. ekki inngöngu á þessa stöð;) oh jæja
Bið að heilsa í ræktina og Steinunni:)
Skrifa ummæli