Dagur tvö í Japan og þetta er strax orðið mjög áhugavert. Ferðalagið var annars mjög fínt þrátt fyrir að það tæki 25 klst. Afþreyingarkerfi Emirates flugfélagsins sá alveg til þess. Alveg með ólíkindum hvað þetta er fullkomið. Til dæmis geta allir farþegar kveikt á GSM símunum sínum eftir flugtak og hringt að vild. Einnig var staðan í leik Þýskalands og Spánar uppfærð á 15 mín. fresti á snertiskjánum fyrir framan mann. Þeir sem voru séðir voru svo auðvitað með fartölvu með sér sem hægt var að stinga í samband í sætisbakinu fyrir framan og ná sér þannig bæði í rafmagn og netsamband.
Ég er strax byrjaður að taka hlutverk mitt sem viðhengi Steinunnar alvarlega og byrjaður að mæta í móttökur og ræðuhöld. Ákveðið var að notast við styttri útgáfu fornafns og kynna mig sem Raggi (einhverjir gætu þó haldið því fram að Ra sé nóg). Japanir eiga erfitt með að þekkja muninn á R og L en það kemur til vegna þess að fyrir þeim er þetta sama hljóðið. Þeirra L/R er þarna rétt á milli. Þannig að þegar við gerum R eða L hljóð finnst þeim það bara vera aðeins "off" í aðra hvort áttina. Þetta er mjög mikilvægt að hafa í huga þegar maður reynir að skilja ensku með japönskum hreim. Í dag kom þetta berlega í ljós þegar ég fór með Steinunni á opinberan vettvang og var kynntur sem Raggi. Ha....heitir hann Lucky....nei Raggi...já Laggi. Það þótti engu að síður mjög jákvætt að nafnið mitt hljómaði svipað og Lucky.
Sem viðhengi opinbers starfsmanns þarf ég að gæta að ýmsu. Klæðaburður er t.d. mjög mikilvægur. Hér í Japan eru nánast allir í svörtum buxum og í hvítri skyrtu (+jakki ef kalt). Þetta look er svo kryddað með bindi eða nánast hvítri skyrtu (t.d. ljósbleikri). Í dag hitti ég svo borgarstjóra Sakai borgar en hann þótti ansi "casual" í hvítri skyrtu með bláum röndum og með uppbrettar ermar. Við spurðum út í þessa villtu hegðun borgarstjórans og okkur var tjáð að þetta væri "Cool Biz" lúkkið. Eftir smá heimildaleit komst ég að því að um er að ræða átak japanska Umhverfisráðuneytisins til að spara kostnað við loftkælingu í opinberum byggingum. Þetta hefur leitt af sér nýja "tískustrauma" í Japönskum klæðaburði og nú sjást jafnvel æðstu menn landsins í viðtölum án þess að vera með bindi. Ég hef því að sjálfsögðu tekið upp hið umhverfisvæna Cool Biz look í Japan.
3 ummæli:
Hlakkar til að sjá myndir af þér ásamt öllum hinum Cool Biz gæjunum í Japan :) Kveðja frá okkur Hrefnu og Ægi.
Frábært að þú ætlir að blogga um japanska ævintýrið! Hlakka til að fylgjast með! :-)
Vona að þið Steinunn hafið það sem allra best!
Kærar kveðjur, Kristjana
Síðan er komin í favorites hjá mér, ég fylgist með ;0)
Kveðja
Hörður
Ps mér gengur erfiðlega að pósta þessu kommenti, þú fyrirgefur ef það kemur margoft inn ;0)
Skrifa ummæli